miðvikudagur, júlí 12, 2006

Ísalandið hið góða

Ég vaknaði í morgun og bölvaði sjálfri mér fyrir að hafa dreymt svona andstyggilegan draum. En hvað það er ljótt af undirmeðvitundinni að plata mig svona að ég sé á Íslandi. Ég sneri mér á hina hliðina og vafði sænginni þéttar utan um mig og harmaði örlög mín að vera ennþá í London. Ég náði að sofna aftur en var vakin hálftíma seinna við mjúkt faðmlag og blíð kærleiksorð í eyra. Júlía litla 6 ára systir mín var þá skriðin uppí til mín og loksins hristi ég af mér svefninn. Ég var þá á íslandi eftir allt saman!

Það er svo ljúft að vera komin heim að ég get því ekki með orðum lýst. Ég hef aldrei verið svona lengi úti í einu, hef ekki komið heim síðan í apríl, og heimþráin var farin að láta á sér kræla. Ég get ekki ímyndað mér hvernig fólk afber það að vera í útlöndum árum og áratugum saman. Til slíkrar dvalar eru rætur mínar of djúpt settar í landgrunni Íslands.

Brottför frá Keflavík verður hinn 3 ágúst. Þangað til vonast ég til að hitta sem flest ykkar og fara í eina útilegu eða sjö! :) Svo er afmælið mitt víst handan við hornið....

4 Comments:

Anonymous Brynja said...

sakna þín sæta mín, hafðu það sem allra best heima!

9:16 PM  
Anonymous kollan said...

hæhæ. Ætlaði bara að skila eftir smá kveðju. Því ég verð farin þegar þú kemur aftur =) En njóttu þess að vera á islandi og hafðu það gott svo uti þegar þu ferð til baka :*

6:09 PM  
Anonymous Tinna Pinna said...

Hæ Ragga í bragga!
Ég hef nú ekki verið dugleg að kommenta.. Ég reyndar afar ódugleg við að kveikja á tölvu og sitja fyrir framan skjá. En fyrst ég tók mér tak í því núna rétt áðan, þá datt mér í hug að kíkja á þig.
En hvað segiru? Hefurðu tíma á meðan á dvöl þinni hérna stendur til að hitta mig, og kannski okkar sameiginlegu vini líka? Það væri rosa rosa gaman! Það fer að verða ár síðan ég sá þig síðast, held ég. En hafðu endilega samband, annað hvort með kommenti við þessu kommenti hjá mér, eða bara með gamaldags-aðferðinni, að hringja ;o)

Heyrumst,
Tinna (Úr Breiðó (ef þú skildir þekkja fleiri Tinnur))

11:03 PM  
Anonymous Erna said...

Ohh talandi um útilegur! Mig langar svo að taka "Túristann" á laugardaginn...ég veit að jökulsárlón bíða spennt og þjóðvegurinn iðar í skinninu eftir mér...hehe og þér of kors..and Björk of course!

Hvað er ég farin að bulla, ég er komin með innipúkann, ég kemst ekkert út í sólina í dag :(

Kveðja
your Bradybunchina

10:30 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home